Allir íbúar á Suðurnesjum ættu að vera komnir með eðlilegan þrýsting á heitu vatni um miðnætti, þetta segir Sigrún Inga Ævarsdóttir, upplýsingafulltrúi HS veitna.Lokað var fyrir heita vatnið á Suðurnesjum í dag vegna framkvæmda á stofnæð hitaveitu við Njarðarbraut og við dælustöð á Fitjum. Nú þegar er komið jafnvægi á heita vatnið á flestum stöðum í Reykjanesbæ og heitt vatn er byrjað að streyma í Voga og Suðurnesjabæ.Vogar á Vatnsleysuströnd.RÚV / Ragnar Visage