„Í stað þess að fara Framsóknarleiðina með áherslu á vinnu, vöxt og velferð blasir við önnur niðurstaða. Ríkisstjórnin hefur því miður valið að fara aðra leið, leið skatta, samdráttar og skerðingar.“Þetta voru lokaorð Stefáns Vagns Stefánssonar, formanns þingflokks Framsóknarflokksins, í ræðu sinni eftir stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld. Hann segir ríkisstjórnina fá falleinkunn í hagstjórn.Stefán Vagn nýtti ræðuna meðal annars til að líta yfir farinn veg ríkisstjórnarinnar, „hinnar svokölluðu verkstjórnar“. Hann sagði loforð ríkisstjórnarinnar um að berja niður vexti og verðbólgu hafa elst illa. Þess í stað sé verðbólga á uppleið og vextir í hæstu hæðum.„Ríkisstjórnin virðist vera þess vanmáttug að valda því verkefni sem hún var kosin út á, verkefni sem hún lagði höfuðáherslu