„Ég vil kalla þetta landsbyggðarskatt“

Sveitarstjórnarfólk á Norðurlandi eystra segir landsbyggðarskatt felast í nýkynntum fjárlögum, til dæmis með kílómetragjaldinu og hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra samþykktu ályktun gegn aukinni gjaldtöku á baðlón á haustþingi í dag. Þingið fór fram á Dalvík og voru mættir fulltrúar frá þeim tíu sveitarfélögum sem standa að SSNE.Til stóð að álykta gegn hækkun á kílómetragjaldi en það var ekki gert. Ástæðan var sögð sú að of skammur tími hefði gefist til að skrifa ályktun, en fjárlagafrumvarpið var kynnt fyrir tveimur dögum.„Þetta leggst ekki allt of vel í okkur. Ég les því miður út úr þessu svolítið mikið af landsbyggðarskatti. Fyrst ber að nefna kílómetraskattinn. Mér líst illa á þessa þróun þar. Þó þetta sé lítið í krónutölum fyrir hvern kílómetr
„Ég vil kalla þetta landsbyggðarskatt“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd