Landlæknir kannar aðstæður hjá SÁÁ

Öryggi sjúklinga og gæði þjónustunnar verða að vera í fyrirrúmi, segir landlæknir um stöðuna hjá SÁÁ. Hún segir að ef rekstrarformið trufli það, þá þurfi að endurskoða það.Forstjóri Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, SÁÁ, og fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur, sem er sálfræðingur, sögðu upp störfum í ágúst. Stuttu síðar sagði Valgerður Rúnarsdóttir framkvæmdastjóri lækninga á Vogi starfi sínu lausu vegna þess sem hún segir vera afskipti stjórnar félagsins af faglegu starfi.Sjúkratryggingar og SÁÁ gerðu nýjan heildarsamning í desember til fjögurra ára og fær SÁÁ tvo milljarða króna á ári frá ríkinu samkvæmt samningnum. Embætti landlæknis hefur faglegt eftirlit.„Við fórum þarna til þeirra um leið og við fengum fregnir af þessari stöðu og byrjuðum að skoða raunverulegar aðs
Landlæknir kannar aðstæður hjá SÁÁ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd