Þorgerður með skilaboð til Farage, Le Pen og AfD

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sendi erlendum ráðamönnum sem fögnuðu niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið pillu í ræðu sinni eftir stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld.Þorgerður sagði þjóðaratkvæðagreiðsluna ekki snúast um hvernig Ísland ætti að vera; Ísland yrði áfram frjálslynt og umbótasinnað Evrópuríki.„Og við þau sem fögnuðu sérstaklega niðurstöðunni erlendis: Le Pen og Farage, Salvini og þingmenn AfD öfgaflokksins í Þýskalandi, sem eru reyndar skoðanasystkini sumra, ákveðinna stjórnarandstöðuþingmanna hér inni, við þau vil ég segja: Þið fáið ekki að skilgreina fyrir hvað íslenska þjóðin stendur. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar breytir hvorki gildum okkar Íslendinga né áratuga utanríkisstefnu okkar.“
Þorgerður með skilaboð til Farage, Le Pen og AfD

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd