Valdimar Breiðfjörð Birgisson, fulltrúi Mosfellsbæjar í samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, segir það mistök að byggja ekki upp skíðasvæðið í Skálafelli. Valdimar var gestur í Síðdegisútvarpinu í dag.Skíðasvæðið í Skálafelli hefur verið lokað undanfarin fjögur ár. Hávær umræða er um að hætta við alla frekari uppbyggingu á svæðinu í stað þess að opna það aftur. Samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins samþykkti nýverið að óska eftir því að stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu endurskoði samkomulag frá árinu 2018 um uppbyggingu á svæðinu.Fulltrúi Mosfellsbæjar í samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, segir það mistök að byggja ekki upp skíðasvæðið í Skálafelli. Hann dregur áætlaðan kostnað við uppbygginuna í efa.Í síðdegisútvarpinu í gær var rætt við M