Kristrún Frostadóttir hvatti þingmenn og þjóð til góðra verka í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld.„Þetta er sameiginlegt verkefni okkar, þvert á flokka. Og hvernig sem vindar blása í stjórnmálum eða í hagkerfi heimsins, þá berum við alltaf ábyrgð á eigin árangri og framtíð Íslands,“ sagði Kristrún.Hún nýtti tækifærið til að þakka þjóðinni fyrir að svara kalli lýðræðisins í sumar með opinni umræðu sem hafi aukið meðvitund allra um stefnu og stöðu Íslands í heiminum.Hún sagði þjóðaratkvæðagreiðsluna sigur, hvernig sem á það væri litið. Kosningaþátttaka hafi verið söguleg, með því að efna loforð til þjóðarinnar hafi gömul sár verið grædd, og að skýrari stefna Íslands um samskipti við Evrópu og umheiminn hafi verið mörkuð.„Nú horfum við fram á veginn. Ein þjóð í einu landi. Og við sem njótum