Þorgerður fundaði með Zelensky á Keflavíkurflugvelli

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta á Keflavíkurflugvelli síðdegis í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.„Við áttum upplýsandi og einlægt samtal um stöðu mála og ég undirstrikaði staðfastan stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu gegn landvinningastríði Rússlands,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu í tilkynningunni. „Við hlustum á óskir Úkraínu um stuðning og íslensk stjórnvöld munu halda ótrauð áfram að veita þeim nauðsynlegan varnar-, efnahags- og mannúðarstuðning, einkum sem lýtur að loftvörnum og á sviði orkumála enda horfir úkraínska þjóðin því miður fram á harðan vetur.“ Ásamt Selenskí tóku þátt í fundinum orkumálaráðherrann Denys Shmyhal og Rustem Umerov, yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar, sem me
Þorgerður fundaði með Zelensky á Keflavíkurflugvelli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd