Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur komist að þeirri niðurstöðu að vafi leiki á hvort lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafi verið heimil innganga á heimili ónefnds manns. Maðurinn hafði bannað lögreglumönnum að fara inn í húsið en grunur lék á að hann hafi beitt kærustu sína heimilisofbeldi.