Ísland er á meðal neðstu PISA-þjóða þegar tekin er saman tölfræði um fylgni á milli útgjalda ríkisins til menntamála og stigafjölda í PISA-rannsókninni. Útgjöld til menntamála á Íslandi eru á meðal þeirra hæstu í heimi á hvern nemanda en peningarnir virðast ekki nýtast kerfinu til að búa til afburðanemendur.