Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að horfa þurfi á forsendur kjarasamninga í stærra samhengi. Málið snúist um meira en að bjarga kjarasamningum fyrir 8. október.Forsendur kjarasamninga brustu þegar verðbólga mældist yfir viðmiði kjarasamninga í ágúst. Aðilar vinnumarkaðarins hafa þann kost á að rifta samningum fyrir áttunda október, finnist ekki lausn.„Ég horfi þannig á þessa stöðu að þetta snýst ekkert bara um það að bjarga kjarasamningum á þessum tímapunkti fyrir 8. október. Að sjálfsögðu hljótum við að horfa á hlutina í einhverju stærra samhengi og spyrja okkur: Hvernig gengur okkur í dag og hvernig mun okkur ganga á næstunni við að framleiða frekari verðmæti í landinu til þess að standa undir lífskjörunum?“ SAMRÁÐ HAFI SKILAÐ SÉR Í ÁKVEÐNUM ATRIÐUM Fi