Støre: Flugvél Zelenskys varð næstum fyrir dróna á leið sinni til Óslóar

Flugvél sem Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti ferðaðist með frá Móldóvu til Óslóar í gærkvöld varð næstum fyrir dróna þegar hún var að taka á loft. Frá þessu greinir Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs í viðtali við norska ríkisútvarpið, NRK. „Þetta er raunveruleikinn sem hann býr við,“ segir Støre.Zelensky var við útför Haraldar V Noregskonungs í Ósló í dag. Hann nýtti ferðina og fundaði með norskum ráðamönnum í gærkvöld og í dag.„Ég spurði hann hvernig nóttin hefði verið og hann sagði að þetta hefði ekki verið góð nótt því hann hefði verið í símanum til að fá fregnir af því hvar skotflaugar Rússa hefðu komið niður,“ segir Støre um fund þeirra Zelenskys í dag.Tveir voru drepnir í loftárás Rússa á landamærastöð milli Úkraínu og Moldóvu í nótt. Einn var drepinn og fjórtán særðust í dró
Støre: Flugvél Zelenskys varð næstum fyrir dróna á leið sinni til Óslóar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd