Frammistaða íslenskra grunnskólanema hefur aldrei mælst verri en í nýjustu PISA-könnun.Þá sýna niðurstöðurnar að árangur í öllum greinunum þremur; lesskilningi, stærðfræði og vísindum, er verri en síðast þegar könnunin var lögð fyrir árið 2022. Þá var niðurstaðan sú slakasta frá upphafi.Jákvæðu niðurstöðurnar eru hins vegar þær að íslenskum nemendum virðist almennt líða vel í skólanum.Valdimar Víðisson, skólastjóri í Húsaskóla, gleðst yfir því að börnum líði vel í skóla. Hann segir þó nauðsynlegt að gera breytingar á íslensku samfélagi.Rætt var við Valdimar í Speglinum í kvöld. HRAÐI OG ÁREITI Í SAMFÉLAGINU HEFUR ÁHRIF Á BÖRN Valdimar segir ljóst, af niðurstöðum PISA, að íslenskum ungmennum líði betur í skóla. Þau búi yfir seiglu og dugnaði, treysti kennurum sínum og leiti meira til for