Miklar breytingar hafa verið gerðar á fríhöfninni í Leifsstöð. Nýjar verslanir þýska fyrirtækisins Heinemann voru opnaðar formlega á hádegi í dag.Ómar Svavarsson framkvæmdastjóri viðskipta hjá Isavia segir að gerðar hafi verið gagngerar breytingar á versluninni.Nýjar verslanir þýska fyrirtækisins Heinemann voru opnaðar formlega á Flugstöð Leif Eiríkssonar í dag. Töluverðar úrbætur voru gerðar á fríhöfninni, en fjárfestingin er ein sú mesta í ferðaþjónustuverslun á Íslandi. EINS OG HÁLFS MILLJARÐS FJÁRFESTING Endurhönnunin verslanarinnar hefur staðið yfir frá því Gebr. Heinemann tók við rekstri fríhafnarverslananna vorið 2025. Fjárfesting Heinemann er töluverð, um einn og hálfur milljarður. Max Heinemann, annar tveggja forstjóra Gebr. Heinemann segir sérstaka áherslu lagða á upplifun við