Donald Trump gaf Natalie Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum sínum 45 þúsund dali að gjöf í lok síðasta árs. Gjafirnar eru skilgreindar sem „peningagjöf fyrir hátíðarnar“ í opinberum skjölum en þær gætu farið gegn reglum um pólitískt skipaða embættismenn og bónusgreiðslur.