Ríkisstjórnin stendur mun veikar en hún gerði í vor og ósigurinn í þjóðaratkvæðagreiðslunni var reiðarslag, að mati Eiríks Bergmanns stjórnmálafræðiprófessors. Hann segir efnahagsmálin hafa snúist í andhverfu meginerindis stjórnarinnar. Þrátt fyrir aukinn mótvind sjái hann enn ekkert sem bendi til þess að stjórnin sé að falla.