Ólíkt hlutfall barna sem þreyta PISA-könnunina milli landa hefur verið nokkuð á milli tannanna á fólki. Tæplega 4 þúsund, eða 78,2% gjaldgengra nemenda, tóku prófið á Íslandi. Hlutfallið er hins vegar nokkuð lægra í öðrum löndum.Helga Birgisdóttir, lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, segir það af og frá að í útlöndum séu handvalin úrvalsbörn til að taka PISA-prófið.Hún var til viðtals í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.Tiltekinn fjöldi barna þarf að þreyta prófið til að það sé marktækt. Fátt fólk býr á Íslandi í samanburði við önnur lönd og þátttökuhlutfallið því hátt hér. „Við erum marktæk,“ segir Helga.Hún útskýrir að nemendahópurinn erlendis sé valinn til að gefa sem réttasta mynd af honum í heild sinni í hverju landi. „Það eru sérstakar aðferðir við það.“„Það er ekki þannig a