Nokkrum olíuflutningaskipum sökkt nærri Hormússundi

Stjórnvöld í Íran segja her landsins hafa gert árásir á tíu skip nærri Hormússundi í dag, þar á meðal tvö bandarísk skip og átta olíuflutningaskip. Árásirnar eru svar við árásum Bandaríkjahers sem segist hafa sökkt fimm írönskum olíuflutningaskipum í nótt.Ekki hafa verið gerðar eins viðamiklar árásir á skip frá því að stríð Bandaríkjanna í Íran hófst í febrúar. Í það minnsta einn sjómaður sem var um borð í olíuflutningaskipi var drepinn og eins til viðbótar er saknað.Heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp eftir árásirnar. Verðið á Brent-norðursjávarolíu fór yfir 100 Bandaríkjadali á tunnu í fyrsta sinn síðan í júlí.Til viðbótar við árásirnar við Hormússund segja Íranar að þeir hafi ráðist á bandaríska herstöð í Jórdaníu með skotflaugum. ÞUNGI FÆRIST Í ÁRÁSIR EFTIR MÁNAÐARLANGA KYRRÐ Ef
Nokkrum olíuflutningaskipum sökkt nærri Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd