Inga Sæland segir að henni hafi orðið fótaskortur á tungunni þegar hún hvatti fólk til að koma með gerast „leikskólakennarar og alvöru kennarar“ í viðtali um skólamál í Reykjavík síðdegis í gær. Biður hún leikskólakennara afsökunar og segist líta ofboðslega mikið upp til stéttarinnar.