Verkalýðshreyfingin hefur ekki fengið næg svör frá stjórnvöldum til að ákveða hvort tilefni sé til að rjúfa kjarasamninga, segir forseti Alþýðusambands Íslands. Eiginlegar viðræður séu ekki hafnar.Forsendur kjarasamninga brustu þegar verðbólga mældist yfir viðmiði kjarasamninga í ágúst og þá getur verkalýðshreyfingin rift samningum fyrir 8. október.„Það eru svona þreifingar í gangi en það verður að vera komin alvara í þetta í næstu viku ef þetta á að nást saman,“ segir Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands. MARKMIÐIÐ AÐ NÁ NIÐUR VERÐBÓLGU Margir þurfi að koma að samningaborðinu og ná saman til að kjarasamningar haldi.„Þar eru meðal annars sveitarfélög sem hafa verið að hækka gjaldskrár sínar allt of mikið og það eru fyrirtæki sem þurfa að undirgangast það aftur að þau ta