Hálfs árs fangelsi fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum

Tveir menn hafa verið dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum 2021. Annar þeirra hlaut 6 mánaða dóm og hinn 5 mánaða, báðir komast undan fangelsisvist ef þeir halda skilorð næstu tvö árin.Sprengjan var sú stærsta sinnar tegundar sem sprengd hafði verið á Íslandi og olli milljóna króna tjóni í göngunum milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur.Dómurinn var uppkveðinn í Héraðsdómi Norðurlands eystra í apríl, fimm árum eftir sprenginguna, og urðu þær tafir báðum mönnum til refsiminnkunar. Í dómnum segir að rannsókn, útgáfa ákæru og meðferð málsins fyrir dómi hafi dregist úr hófi af ástæðum sem mönnunum tveimur verði ekki kennt um. Fyrir brot af þessu tagi hefði verið hægt að dæma mennina til allt að sex ára fangelsisvistar.Dómurinn var birtur nýverið eftir athugasemdir frá fréttastofu
Hálfs árs fangelsi fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd