Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segir búið að yfirheyra einstaklinga í tengslum við innbrot í svína- minka- og kalkúnabú í vor og sumar. Enginn hafi þó verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hún segir rannsókn málanna enn í gangi og vill lítið gefa upp um gang þeirra.