Sex ráð til að efla lesskilning barna

Auður Soffíu Björgvinsdóttir, lektor við menntavísindasvið HÍ og formaður Félags læsisfræðinga á Íslandi, segir að til að stuðla að lesskilningi þurfi foreldrar að efla tungumálið hjá börnum sínum. Til að læra að lesa þurfi þau að hafa tök á því. „Án tungumáls verður enginn lestur,“ segir hún. SKÓLARNIR JÖFNUNARTÆKI Niðurstöður PISA-könnunarinnar 2025 sýna að 44% íslenskra grunnskólabarna búa ekki við grunnhæfni í lesskilningi við lok 10. bekkjar.Auður segir mikilvægt að halda því til haga að skólar eigi að vera jöfnunartæki – því ekki hafi allir sömu forsendur og stuðning við nám heima fyrir.Kristján Ketill Stefánsson, dósent við menntavísindasvið HÍ, tekur einnig undir þetta. Hann segir að sjá þurfi til þess að skólarnir geti stutt við þá sem ekki geta fengið nægilegan stuðning heima.
Sex ráð til að efla lesskilning barna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd