Forsætisráðuneytið blæs á gagnrýni formanns Starfsgreinasambandsins, sem segist ekkert kannast við þríhliða samtal ríkis og aðila vinnumarkaðar um brostnar forsendur kjarasamninga. Fundir stýrihóps séu þegar orðnir tólf talsins, forsætisráðherra hafi setið nokkra fundi með ASÍ og SA og málið hafi verið það eina á dagskrá á tveimur fundum þjóðhagsráðs.