Matvælastofnun fjarlægði tugi dýra af bænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna meintrar vanhirðu og slælegrar meðferðar, bæði kindur, hross og hrúta segir Arnar Gústafsson, bóndinn á bænum sem er afar ósáttur við þessar aðgerðir.Arnar segir stofnunina meðal annars hafa fjarlægt 450 kindur, 26 hrúta og 36 hross. Kindurnar voru færðar í sláturhús um helgina og hrútunum lógað og þeir notaðir í moltu, segir bóndinn. MAST hefur reynt að selja hrossin eftir þetta inngrip og einhverjum mun hafa verið lógað.Arnar Gústafsson segir við fréttastofu að hann telji að MAST fari fram með ofríki og einelti og stofnunin sjálf stundi dýraníð. Hann býr á Brimnesi ásamt Kjartani bróður sínum og þar hafa þeir búið í áratugi eftir að hafa tekið við búskapnum af foreldrum sínum.Á stofnanamáli er sagt að stofnuni