Engin greining á stöðunni á íslenskum fjölmiðlamarkaði stenst skoðun án þess að benda á að íslenskir miðlar eiga nú í harðri alþjóðlegri samkeppni um athygli og fjármuni landsmanna. Þar hallar mjög á íslenska miðla og má líkja stöðunni við algjöran markaðsbrest.