Biðjast afsökunar á texta um Norður Kóreu í útför konungs

Norska ríkissjónvarpið baðst afsökunar á mistökum sem áttu sér stað við textun á ræðu biskupsins Olav Fykse Tveit við útför Haraldar Noregskonungs fyrr í dag.Biskupinn sagði að hægt væri að sigrast á erfiðleikum og mótlæti með norsku orðunum: „Noget ondt kan rettes op igen, der findes nye, blanke ark.“Textinn sem fylgdi með á skjánum hjá norska sjónvarpinu var hins vegar:„Nord-Korea vondt kan rettast opp att, det finst nye, blanke ark.“Biskupinn minntist hins vegar hvergi á Norður Kóreu í guðsþjónustunni og NRK báðust afsökunar á mistökunum.Hér má lesa umfjöllun Nettavisen um málið.Olav Fykse Tveit, biskup.EPA / Lise Aserud / POOL
Biðjast afsökunar á texta um Norður Kóreu í útför konungs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd