Friedrich Merz Þýskalandskanslari.EPA / HANNIBAL HANSCHKEFriedrich Merz Þýskalandskanslari aflýsti í dag símtali sem búið var að skipuleggja milli hans og Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Þetta gerðist í kjölfar þess að Trump fagnaði sigri harðlínuflokksins Alternative fur Deutschland í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt um síðustu helgi.Talsmaður Merz neitaði að gefa upp ástæðuna fyrir þessari ákvörðun, en sagði þó að tímasetningin á samtalinu hefði ekki rekist á við aðra liði í dagskrá kanslarans.Talsmaðurinn svaraði ummælum Trumps ekki beint, en sagði þó að Merz hefði iðulega mótmælt því að utanaðkomandi aðilar væru að reyna að hafa áhrif á stjórnmálaástandið í Þýskalandi.