Meðal þeirra eigna sem bætast við langan lista sem fjármálaráðherra er heimilt að selja með nýju fjárlagafrumvarpi, að því gefnu að það verði samþykkt, eru núverandi húsnæði lyfjafræðideildar Háskóla Íslands við Hofsvallagötu, eignarhluti ríkisins í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, ratsjárhús á Reykjavíkurflugvelli og atvinnuhús á Akranesi.