Leikskólakennarar eru alvöru kennarar segir formaður svæðadeildar leikskólakennara í Reykjavík og segir fólk í stéttinni slegið yfir orðum barna- og menntamálaráðherra í gær. Þá segir hún að breyta þurfi því viðhorfi að gott sé að fara að vinna í leikskóla til að læra íslensku.