Tímabundin lausn í sjónmáli – hundruð barna enn á biðlista

Bið eftir þjónustu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar lengist eftir að loka þurfti húsnæðinu við Dalshraun í Hafnarfirði vegna myglu. Leitað er að tímabundnu húsnæði til að brúa bilið og til stendur að endurskoða þjónustuna til að auka afköst og stytta biðlista.Meðalbiðtími er rúmlega tvö ár, samkvæmt upplýsingum frá Umboðsmanni barna.790 börn með alvarlegar þroskaskerðingar voru á biðlista eftir sumarið áður en húsnæðinu var lokað eftir að mygla fannst. Starfsfólk vinnur heima á meðan og stöðin tekur við um helmingi færri börnum en þegar hún starfar á fullum afköstum.„Það var uppsafnað eftir sumarfríið því við lokuðum í júlí. Síðan höfum við farið í gegnum marga tugi tilvísana sem fara í bið,“ segir Solveig Sigurðardóttir, staðgengill forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar.„Við reynum að
Tímabundin lausn í sjónmáli – hundruð barna enn á biðlista

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd