PISA-niðurstöðurnar sem birtust í gær kalla á ábyrga umræðu. Árangur íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum er undir meðaltali OECD og þróunin undanfarin ár er áhyggjuefni. Niðurstöðurnar 2025 staðfesta að sá mikli samdráttur sem varð milli áranna 2018 og 2022 hefur ekki gengið til baka.