Íslendingar í vanda á Spáni út af gjaldþroti leigufélags: „Ég á ekki orð til að lýsa tilfinningum mínum“

Tíu Íslendingar eru í erfiðleikum á Alicante á Spáni eftir að hafa leigt húsnæði af leigufélagi sem er í eigu íslensks fyrirtækis sem komið er í greiðslustöðvun. Guðrún Svava Pálmarsdóttir er 65 ára gömul kona sem leigði íbúð á Play Flamenca á Alicante af leigufélaginu Sólarmegin. Þegar hún kom út til Spánar í byrjun mánaðarins kom hins vegar í ljós að hún fengi ekki íbúðina, segir hún í samtali við fréttastofu. Hún segist hafa greitt 2500 evrur eða 360.000 krónur fyrir íbúðina. Níu aðrir Íslendingar eru í sömu sporum og hún á Spáni, segir Guðrún Svava. Eigandi leigufélagsins er Samúel Jón Samúelsson. Hann segir í samtali við fréttastofu að þetta sé staðan og að fyrirtæki hans á Íslandi sé komið í þrot. Samúel segist vera að vinna í því að aðstoða þá Íslendinga sem hann var búinn að leigja
Íslendingar í vanda á Spáni út af gjaldþroti leigufélags: „Ég á ekki orð til að lýsa tilfinningum mínum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd