Þorgerður Katrín sagði ESB að viðræður hefjist ekki á ný

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sendi Helen McEntee, utanríkisráðherra Írlands, í gær bréf þar sem hún tilkynnti að Ísland ætli ekki að hefja aftur viðræður við Evrópusambandið. McEntee fær bréfið þar sem Írland fer með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins.Þorgerður Katrín segir í bréfinu að ríkisstjórnin virði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar í síðasta mánuði. Þar var tillaga um að hefja viðræður á ný felld. Hún segir að Evrópusambandið sé einn af nánustu samstarfsaðilum Íslands og að það sé óbreytt.
Þorgerður Katrín sagði ESB að viðræður hefjist ekki á ný

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd