Formaður Leigjendasamtakanna fagnar fyrirhuguðu frumvarpi um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð.Nái frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra fram að ganga verður ekki lengur heimilt að tengja leigusamninga við mánaðarlega vísitölu.Yngvi Ómar Sigrúnarson segir málið forgangsmál hjá Leigjendasamtökunum.„Því þetta tíðkast hvergi í heiminum, svo við vitum til, að það sé hægt að hækka leigu mánaðarlega með vísitölu – sem þýðir að þetta hækkar líka verðbólgu.“Hann segir þetta fyrsta skrefið til að bæta réttarstöðu leigjenda á Íslandi og gera leigumarkaðinn réttlátari.Yngvi Ómar bendir á að um 30% landsmanna séu leigjendur og því mikið undir. Breytingin gagnist þó einnig landsmönnum sem eru ekki á leigumarkaði. SLÆR Á VERÐBÓLGUNA „Samkvæmt okkar útreikningum er þetta stór hluti af ársverðb