Þegar einhver í fjölskyldunni glímir við mikla vanlíðan snertir það allt fjölskyldukerfið. Maki liggur vakandi, foreldri fylgist með hverri breytingu, systkini veit ekki hvort það eigi að spyrja eða gefa rými. Óttinn getur orðið mikill og með honum kemur gjarnan sú tilfinning að þurfa að finna réttu orðin eða gera nákvæmlega réttu hlutina.