Heildargreiðslur örorkubóta árið 2025 námu tæplega 113,1 milljarði króna og er það tæplega 150% hærri fjárhæð en var greidd tíu árum fyrr þegar upphæðin nam nær 46 milljörðum. Örorkubótaþegum hefur fjölgað mjög á tímabilinu, fjöldi þeirra var 22.470 árið 2016 samanborið við 30.193 einstaklinga árið 2025.