Búið er að aflýsa 177 flugum til og frá flugvöllum á Bretlandi í dag, samkvæmt flugumferðarsíðunni Flightradar 24. Í færslu Flightradar 24 á X segir að meirihluti þessara fluga sé um Heathrow-flugvöllinn í London.Miklar truflanir voru á flugi í Bretlandi og Írlandi í gær vegna tæknibilunar í flugumsjónarkerfi bresku flugumferðarþjónustunnar NATS og var alls um 1.300 flugum aflýst vegna bilunarinnar.Búið er að laga bilunina og samkvæmt NATS er allt kapp lagt á að aðstoða flugfélög og flugvelli við að vinda ofan af ferðatruflunum frá því í gær.NATS hvetur flugfarþega sem eiga leið til og frá Bretlandi til að kanna hjá sínu flugfélagi stöðuna á fluginu sínu þar sem viðbúið er að tafir eða breytingar gætu haft áhrif á flug í dag.