Haraldur Noregskonungur verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Ósló í dag.Fulltrúar konungsfjölskyldna Evrópu eru mættir til Noregs til að kveðja Harald, þeirra á meðal Vilhjálmur Bretaprins, konungsfjölskyldur af Norðurlöndum og spænsku konungshjónin. Þangað eru líka komnir ráðamenn víða að, svo sem forsetar Finnlands, Þýskalands og Úkraínu og forsætisráðherrar Frakklands og Taílands.Athöfnin hefst á hádegi, klukkan tíu að íslenskum tíma, þegar haldið verður með kistu Haraldar frá konungshöllinni. Hún verður flutt á fallbyssuvagni í gegnum borgina að dómkirkjunni. Fjöldi fólks gengur á eftir kistunni, þar á meðal Hákon konungur, annað konungborið fólk og þjóðhöfðingjar og fulltrúar erlendra ríkja.Sonja drottning, ekkja Haraldar, og Mette-Marit drottning, sem hefur glímt við mikil veikindi,