Ekki í sjónmáli að PCC endurræsi vinnsluna – sveitarstjórn vill gagnaver

Opnun PCC á Bakka við Húsavík er ekki í sjónmáli á næstu vikum, að sögn stjórnenda. Sveitarstjórn hefur undirritað fjölda viljayfirlýsinga um iðnað sem gæti hafist á Bakka, gagnaver er þar efst á blaði.Rúmt ár er síðan slökkt var á kísilmálmframleiðslu PCC á Bakka við Húsavík. Aðeins sautján eru enn við vinnu í verksmiðjunni – í byrjun síðasta árs voru það nærri 150.Lokunin var áfall fyrir samfélagið. Stjórnendur PCC sögðu lokunina fyrst og fremst mega rekja til erfiðra markaðsaðstæðna. Þær yrðu að batna töluvert svo hægt væri að ræsa vélar á ný.Það hefur ekki orðið raunin. NOKKRIR ÁHUGASAMIR UM UPPBYGGINGU GAGNAVERS Sveitarstjórn Norðurþings hefur undirritað viljayfirlýsingar við sex fyrirtæki sem þau vona að fylli að einhverju leyti í skarðið á Bakka, þar má nefna rafeldsneytisframlei
Ekki í sjónmáli að PCC endurræsi vinnsluna – sveitarstjórn vill gagnaver

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd