Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans, segir stöðuna skelfilega á Gasa í dag og hún versni bara. Hann segir ekki þörf á meira fjármagni eða hjálpargögnum en kallar eftir því að Ísland, og alþjóðasamfélagið allt, þrýsti á Ísrael að hleypa Rauða krossinum inn á Gasa með hjálpargögn og fólki út sem þarf á læknisaðstoð að halda. Al-Khatib segir stöðuna ekkert betri þó svo að samið hafi verið um vopnahlé á svæðinu í október í fyrra.