Merki lögreglunnar á búning lögreglumanns.RÚV / Birgir Þór HarðarssonEkið var á vegfaranda á rafmagnshlaupahjóli í Kópavogi eða Breiðholti í gær eða nótt, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingurinn var fluttur á slysadeild með minni háttar áverka.Tveir einstaklingar voru handteknir í Reykjavík fyrir söludreifingu fíkniefna og ólöglega dvöl.Tveir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Annar þeirra mældist á 117 km hraða þar sem hámarkshraðinn er 80 km og hinn reyndist aka á 120 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km.Fimm ökumenn voru kærðir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka bílum sínum sviptir ökuréttindum.Nokkrir einstaklingar voru kærðir fyrir að stela úr verslunum í Reykjavík.