Þingkosningar verða í Serbíu 25. október næstkomandi en til stóð að þær yrðu ekki haldnar fyrr en í desember á næsta ári. Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, tilkynnti um þetta í gær á serbneska ríkismiðlinum RTS. Hann undirritar tilskipun um að rjúfa þingið í dag og boðar þá formlega til kosninganna.Mikil mótmæli hafa verið reglulega í landinu síðan í nóvember 2024, þegar 16 létust þegar steinsteypt þak á lestarstöð hrundi niður í borginni Novi Sad. Stúdentar hafa leitt mótmælin og kölluðu upphaflega eftir því að gerð yrði ítarleg rannsókn á slysinu.Margir hafa kennt spillingu og vanrækslu stjórnvalda um slysið en Vučić hefur hafnað þeim ásökunum. Mótmælin fóru með tímanum að snúast gegn stjórnvöldum með kröfum um afsögn forsetans og snemmbúnar kosningar.Vučić hefur verið forseti Serbíu frá