Bandaríkjaher réðst á fimm írönsk olíuflutningaskip

Bandaríski herinn réðst á fimm írönsk olíuflutningaskip í gær eftir að Íranar réðust á herskip þeirra. Yfirstjórn Bandaríkjahers segir olíuskipin eyðilögð í yfirlýsingu.Í yfirlýsingunni segir að bandaríska herskipið hafi komist undan tilraunum Írana til árása og engan Bandaríkjamann sakað.Íranar svöruðu með eldflaugaárás á bandarísk skotmörk í Jórdaníu, að því er íranskir ríkismiðlar greina frá en yfirstjórn Bandaríkjahers segist ekki hafa neinar upplýsingar um árásirnar.Bandaríkjaher hæfði þrjú írönsk olíuflutningaskip í loftárásum á laugardaginn. Árásirnar voru í hefndarskyni eftir að Íranir skutu á bandarísk herskip.
Bandaríkjaher réðst á fimm írönsk olíuflutningaskip

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd