Frekari tafir á flugumferð á morgun

Gera má ráð fyrir að enn verði tafir á flugi um Bretland og Írland á morgun. Flugsamgöngur þar fóru verulega úr skorðum í dag eftir að tæknivandamál kom upp í flugumsjónarkerfinu NATS.Hundruðum flugferða var aflýst um allt Bretland og tugþúsundir farþega urðu fyrir áhrifum raskana á flugi.Forstjóri NATS baðst afsökunar í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Hún segir að ítarleg rannsókn verði gerð á því hvað hafi farið úrskeiðis. Að sögn forsvarsmanna NATS tók lengri tíma en vonir voru um að leysa vandamálið í kerfinu.Bilunin í dag hafði áhrif á flugferðir Icelandair til og frá Lundúnum.EPA / ANDY RAIN
Frekari tafir á flugumferð á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd