„Hér er botni náð. Við höfum í rauninni eina leið að fara og það er upp,“ segir Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, sem boðaði í dag nýjar aðgerðir sem eiga að stuðla að bættum námsárangri grunnskólanema.Frammistaða íslenskra grunnskólanema hefur aldrei mælst verri en í nýjustu PISA-könnun.Liður í aðgerðum ráðherra er að 455 milljónir króna fari beint í gerð nýrra námsgagna auk fjárveitinga til að efla raunvísindagreinar.Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir þetta góða byrjun. Hann væri þó til í að sjá hærri upphæð.„Annað sem skiptir okkur gríðarlega miklu máli er að lyfta starfsþróun kennara. Staðan er sú að í dag vantar okkur inn í grunnskóla 20% fagmenntaða kennara. Þegar við erum líka með slæm námsgögn þá erum við að gera kröfur til kennara sem eru jafnvel