Ný kennsluaðferð gæti skilað betri árangri

„Erlendar rannsóknir hafa sýnt okkur hvað við getum gert og hvað krakkarnir þurfa að geta til að hafa góðan lesskilning,“ segir Sigríður Ólafsdóttir, læsisfræðingur og dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands.Hún segir menntayfirvöld hafa verið treg við að byggja á tölfræðilegum gögnum í skólastörfum. Mikið sé vitað um læsisfræði sem hafi verið mikið rannsökuð síðustu 30 ár. „Talað er um að læsisfræðin séu vísindi byggð á bjargi,“ segir Sigríður.Frammistaða íslenskra grunnskólanema hefur aldrei mælst jafn slæm og í nýjustu PISA-könnun. Aðeins rétt rúmur helmingur nemenda bjó yfir grunnhæfni í lesskilningi.Sigríður segir orðaforða leika lykilhlutverk í lesskilningi. „Ekki bara orðin sem eru einkennandi fyrir náttúruvísindi, samfélagsfræði, heldur orðin sem eru notuð þegar verið er að fj
Ný kennsluaðferð gæti skilað betri árangri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd