Minni- og meirihluta borgarstjórnar greindi verulega á um skipulagsbreytingar og uppsagnir á borgarstjórnarfundi í dag. Búast má við að frekari hagræðing leiði til uppsagna.„Við höfum áhyggjur af hverfunum. Við höfum áhyggjur af því að við séum að segja upp fólki núna með heilmikla reynslu, mikið fagfólk, en ekki síst reynslu úr hverfunum,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar.„Við erum auðvitað í þessum breytingarfasa með borgarkerfið. Það er hagræðingarhópur að störfum sem er núna að vinna að næstu tillögum í greiningum á hinum ýmsu sviðum borgarinnar,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.„Breytingar og hagræðingar, þær leiða óhjákvæmilega til þess að einhverjum er sagt upp. Því miður. Það er alltaf sárt og erfitt. Ég tel líklegt að það verði meira um slíkt.“