Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp næsta árs með pompi og prakt í gær. Formenn stjórnarflokkanna þriggja voru allir viðstaddir og afhentu honum eins konar viðurkenningarskjal vegna þess að halli frumvarpsins er enginn, í anda gjörnings Bills Clintons þáverandi Bandaríkjaforseta árið 1999.