Kveikt í dagblaði og stungið inn um lúgu heimilis

„Þetta er mjög slæm tilfinning, að upplifa það að það sé verið að ráðast á heimili manns og með þessum hætti líka. Ráðherrar og fleiri hafa verið að lýsa hótunum sem þeir hafa fengið í sinn garð en að upplifa svona er skelfilegt.“Þetta segir Heimir Björn Janusarson garðyrkjufræðingur. Hann er búsettur í Vesturbæ Reykjavíkur ásamt konu sinni, Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðingi. Hjónin eru um sextugt.Þegar hjónin fóru á fætur í morgun hafði verið reynt að kveikja í heimili þeirra. Eldurinn dó út af sjálfsdáðum.„Ég vaknaði síðla nætur eða snemma morguns, eitthvað svona um hálf sex leytið, og fann þá rosa skrýtna lykt og fór fram úr og var ekki var við neitt og fór inn í eldhús og þar var ekkert um að vera þannig ég fór bara aftur upp í. Hélt þetta væri bara eitthvað utanaðkomandi af því við vo
Kveikt í dagblaði og stungið inn um lúgu heimilis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd